Hagfræðingur hjá ROCKWOOL Foundation Research Unit í Kaupmannahöfn. Ég rannsaka alþjóðaviðskipti, hnattvæðingu og vinnumarkaði á Norðurlöndum, einkum á Eyrarsundssvæðinu.
Ég er fæddur og uppalinn á Íslandi, lauk BS-prófi í hagfræði frá Háskóla Íslands, með skiptinámi við University of Oklahoma, og MA-prófi frá Boston University, og starfaði sem hagfræðingur í Reykjavík áður en ég flutti til Lundar í doktorsnám árið 2011.
Í Lundi, steinsnar frá Kaupmannahöfn hinum megin við Eyrarsundsbrúna, vaknaði snemma áhugi minn á Eyrarsundssvæðinu. Sá áhugi hefur mótað rannsóknir mínar í meira en áratug.
Rannsóknir mínar byggja að mestu á dönskum og sænskum skrárgögnum. Ég hef byggt upp gagnagrunn sem samtengir þessi gögn, meðal annars þvert á landamærin, og er einstakur á sínu sviði. Hann liggur til grundvallar mörgum rannsóknaverkefnum mínum.
Eyrarsundssvæðið og vinnusókn yfir landamæri
Dönsk og sænsk skrárgögn
Tollar og viðskiptastefna
Hnattvæðing og vinnumarkaðurinn
Fjölþjóðafyrirtæki og nýsköpun
Íslenskt efnahagslíf
Tungumál
Íslenska
Móðurmál
Enska
Reiprennandi
Sænska
Reiprennandi
Danska
Góð kunnátta
Maí 2025
„Trump og tollar: Fórn á við margfalda íslenska verðmætasköpun – ár eftir ár?“ Vísbending.
2010–2012
Skýrslur fyrir Hagfræðistofnun Háskóla Íslands og Viðskiptaráð Íslands.
Rannsóknir, fréttir og fyrirlestrar eru á ensku síðunni.